Ljúfa líf ljúfa líf
Já lífið er ljúft þessa dagana kæru lesendur. Sól og sumar í Danmörku.
Af Dísu er allt gott að frétta þessa dagana. Hún er að vísu enn á spítalanum en losnar von bráðar við súrefnið og verður vonandi útskrifuð fljótlega. Þá getur hún væntanlega farið að njóta sumarsins hér í Danmörku með mér í nokkra daga áður en að við komum svo heim.
Af Dísu er allt gott að frétta þessa dagana. Hún er að vísu enn á spítalanum en losnar von bráðar við súrefnið og verður vonandi útskrifuð fljótlega. Þá getur hún væntanlega farið að njóta sumarsins hér í Danmörku með mér í nokkra daga áður en að við komum svo heim.
Annars hefur verið í nógu að snúast hjá mér undanfarna daga. Ég hef dvalið hér á spítalanum heilu og hálfu dagana eins og gefur að skilja og verið með Dísu í stífu æfingaprógrammi. Þar að auki þá fékk ég Ólaf bróðir minn í heimsókn um seinustu helgi. Ástæða heimsóknar hans var sú að hann hafði frétt að ég ætti tvo miða á Radiohead tónleika hér í Kaupmannahöfn. Þannig að á laugardagskveldið þá skelltum við okkur í KB Hallen og hlýddum á ljúfa tóna Raidohead grúppunnar.
Því má heldur ekki gleyma að sama dag og hinir ágætu Radiohead tónleikar fóru fram þá tryggði mínir menn í Colchester United sér sæti í Championship deildinni að ári, eftir að hafi náð öðru sæti í League One. Sórmerkilegt afrek fyrir ekki stærri klúbb.
Um næstu helgi eigum við Dísa líka von á góðu, því þá mun fjölskyldan úr Faxaskjólinu koma í heimsókn ásamt Sigurði Grétari.
Það eru því góðir tímar framundan kæru lesendur. Ég þakka lesturinn.


7 Comments:
Dísa mín, ég sendi þér mínar allra hörðustu baráttukveðjur! ;)
Kv. Marta
Já svo sannarlega góðir tímar framundan.....sjáumst eftir nokkra klukkutíma
Gangi þér vel Dísa mín. Ég er alltaf að hugsa til þín. Baráttu og vinarkveðja frá Sydney.
Love,
Erna
Baráttukveðjur til Dísu frá fjölskyldunni í Valshólum 4.
P.S. Áfram Colchester.
Good design!
[url=http://twbazctc.com/anzs/enlb.html]My homepage[/url] | [url=http://leuphikl.com/cnqj/afcd.html]Cool site[/url]
Well done!
My homepage | Please visit
Thank you!
http://twbazctc.com/anzs/enlb.html | http://smgstdmc.com/oyps/hapq.html
Sendu inn athugasemd
<< Home