Góð kaup
Í gær brá ég mér í H&M að ósk Dísu til að kaupa mér eins og nokkur stykki stuttermaboli. Ég keypti mér nefnilega sumarjakka í H&M um daginn og komst svo að því þegar heim var komið að ég átti engin föt til að vera í undir honum. Hef ég þess vegna gengið ber inn undir jakkanum seinustu daga. Það fannst Dísu ekki smekklegt og sendi mig þess vegna í annan verzlunarleiðangur. Ég bara verð að segja ykkur lesendur góðir að ég gerði reifarkaup í H&M í gær, má segja að ég hafi fengið mikið fyrir lítið. Tókst mér að finna, nota bene í H&M, þrjá afar smekklega stuttermaboli (sem ég mun sennilega nota mjög mikið) og þar að auki ein sólgleraugu (sem ég mun sennilega aldrei nota) á hreint út sagt frábæru verði. Ég lýg því ekki, kæru lesendur, þegar ég segi ykkur að ég borgaði innan við 350 kr. fyrir allt þetta í H&M. Önnur eins reifarakaup hef ég ekki gert síðan ég verzlaði seinast í Miklagarði.
P.S. Þessi færsla var í boði H&M (zeturnar voru í boði Morgunblaðisins)


7 Comments:
vá, þrír bleikir latex-stakkar á innan við 100 kr stykkið! ég verð að drífa mig og næla mér í eintak! manstu, við vorum líka búin að lofa Hannesi að versla einn handa honum ef við sæjum eitthvað nothæft. tekur þú ekki stakkinn með handa honum þegar þú ferð heim á klakann?
ps. annars fín mynd af þér, þú ert óvenju hress á henni en ég vissi ekki að þú værir farin að fá grá hár?
Samgleðst þér reifarakaupin Vúsílú minn. Kysstu spúsu og knúsaðu frá mér - sakna hennar alveg voðalega! Mússí múss.
Ég er búin að berja jakkann augum og þvílíkt og annað eins hefur varla sést. Vésteinn er sannur evrópskur töffari í höri. Julio Iglesias myndi gráta ef hann sæi þetta.
Good design!
[url=http://rkcgmioz.com/heqi/hnea.html]My homepage[/url] | [url=http://dyqajghd.com/tqor/dqty.html]Cool site[/url]
Nice site!
My homepage | Please visit
Well done!
http://rkcgmioz.com/heqi/hnea.html | http://rnhpgsxs.com/avdh/kuhb.html
hey, I just got a free $500.00 Gift Card. you can redeem yours at Abercrombie & Fitch All you have to do to get yours is Click Here to get a $500 free gift card for your backtoschool wardrobe
Sendu inn athugasemd
<< Home