19 apríl 2006

Frá 4. sal upp á 14. sal

Dísa og Sheffield United upp um deild

Sælir kæru lesendur enn á ný!
Í gær var Dísa útskrifuð af gjörgæsludeildinni og flutti sig um set upp á 14. hæð á lungnadeild Ríkisspítalans hér í Kaupmannahöfn. Þar mun hún svo dvelja næstu vikurnar meðan hún er að jafna sig eftir aðgerðina auk þess sem endurhæfingin heldur áfram.
Þar sem Dísa er nú komin af gjörgæsludeildinni þá er nú aftur hægt að ná í hana í síma fyrir þá sem það vilja. Af og til er hún með kveikt á gemmsanum sínum fyrir þá sem muna ekki númerið þá er það +45 22823671. Þegar slökt er á GSM símanum eða hann utan þjónustusvæðis þá er hægt að hringja í spítalasímanúmerið hennar +45 70133434 og þegar símsvarinn svarar þá veljið þið 1617 og fáið beint samband við símann við hliðina á rúminu hennar Dísu.
Auk þess mun hún nú verða komin í eitthvað tölvu samband á næstu dögum þannig að sambandið við umheiminn ætti að verða orðið nokkuð gott bráðlega.
Að lokum vildi Dísa að ég kæmi því á framfæri við ykkur lesendur góðir að það sem hefur haft mest áhrif á góðan bata hennar undanfarna daga voru þær fréttir sem ég færði henni á páskadag, en það voru þær fréttir að Sheffield United væri komið upp í úrvalsdeildina eftir 12 ára fjarveru. Dísa hefur einmitt verið dyggur stuðningsmaður strákanna frá Bramall Lane í fjöld mörg ár. Til hamingju Dísa og til hamingju Sheffield United.

9 Comments:

At 11:37 PM, Blogger Vigdis said...

Frábært að heyra svona góðar fréttir. Hlakka til að heyra í þér Dísa mín þegar þú kemst á netið :)

 
At 12:40 AM, Anonymous runar said...

thetta er runar herna hann vill segja eitthvad fallegt, og fyrirgefdu ad eg gleymdi afmaelinu thinu en eg er bara svo sjalfhverfur, er samt ad reyna ad baeta ur thvi. en eg er anaegdur ad allt gangi vel og langar ad heyra i ther fljotlega.

kaer kvedja
runar logi

 
At 4:10 PM, Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að heyra að allt hefur gengið svona vel! Hlakka til að heyra í þér bráðlega!

kveðjur og knús,
Klara

 
At 7:31 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Disa min thu ert YNDI!

Barattu og saknadarkvedjur fra sydney.

love,
Erna

 
At 12:36 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Já hún Dísa hefur í þónokkurn tíma verið ofuraðdáandi "überfan" Sheffield! Hmm...
Luv ya´ll (elsk´ykkur)!

Auður Ævarr

 
At 1:31 PM, Anonymous Rósa said...

elsku Dísa mín og Vésteinn, mikið er ég glöð við þessar fréttir!

ástarkveðjur héðan frá Árósum

 
At 6:59 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Good design!
[url=http://stuzjcbf.com/dsju/wqmf.html]My homepage[/url] | [url=http://uhokmovd.com/jtod/vyjd.html]Cool site[/url]

 
At 6:59 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Nice site!
My homepage | Please visit

 
At 6:59 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Great work!
http://stuzjcbf.com/dsju/wqmf.html | http://tmvezxbr.com/dsvx/bxnl.html

 

Sendu inn athugasemd

<< Home