03 apríl 2006

Fødselsdagsfest 2: The Sequel


Afmæliskakan sem ég bakaði fyrir Dísu
Já ykkur kann að þykja það ótrúlegt, en það er satt. Dísa á afmæli í dag, jafnvel þó hún líti ekki út fyrir að vera deginum eldri en hún var í gær. Til hamingju með afmælið Dísa.
Í tilefni dagsins þá bakaði ég þessa líka úrvals köku fyrir ástkonu mína, úr hágæða dönsku hráefni. Í kvöld ætla ég svo að elda fyrir hana danskan úrvals kjúkling.
Á morgun eða seinna í vikunni þegar ég verð búinn að ná mér af slappleikanum sem hefur verið að hrjá mig seinustu daga ætlum við svo að fara út að borða í tilefni afmælisins.
Að lokum viljum við Dísa koma á framfæri innilegum hamingjuóskum til afa Dísu sem einmitt á líka afmæli í dag.

8 Comments:

At 4:55 PM, Anonymous Guðrún said...

Elsku Dísa mín, enn og aftur til hamingju með afmælið. Flott kaka hjá strákum.
Bestu kveðjur frá tengdaforeldrum, Friðriki Sófus, Silvester Rúfus, Perlu og Senju.

 
At 4:59 PM, Anonymous Jón Sigurður said...

Til hamingju. Við Auður skildum afmælisgjöfina eftir hjá ykkur í febrúar. Þetta er svona lítil og sæt stytta af marglitum asna í hollenskum tréskóm og með gyllt eyru.

Það var nú lítið!

 
At 8:51 PM, Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju með daginn dúllan mín,vonandi er kallinn búinn að dúlla við þig í dag.Með bestu kveðju frá mér og Steina.Jóna

 
At 11:07 PM, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn, Dísa Rós. Kærar kveðjur úr Fljótsdalnum. Skúli, Elísabet, Jóhanna Malen og Ragnhildur Elín.

 
At 12:22 AM, Blogger Dísa said...

Takk öll sömul fyrir afmæliskveðjurnar og gjafir.
Kakan og maturinn smakkaðist ótrúlega vel.
Kossar og knús til ykkar allra.

 
At 3:09 PM, Anonymous Tótlan said...

Til lukku með daginn um daginn Dísa mín...ég var allan þann dag og næsta dag líka að hugsa, það á einhver afmæli núna sem ég þekki en ég fattaði það ekki fyrr en of seint.

 
At 4:37 PM, Anonymous Klara - nýkomin heim frá London said...

Til hamingju með afmælið Dísa mín. Vona að þið skötuhjúin hafi átt yndislegan dag.

 
At 11:20 AM, Anonymous Helga Rún said...

Til hamingju með daginn Dísa mín, vona að þú hafir átt góðan dag :)

 

Sendu inn athugasemd

<< Home