Peitur leikur
Ég skellti mér aðeins út á næturlífið í Kaupmannahöfn í gærkveldi. Kveldið byrjaði á því að ég hitti Gunna litla og félaga hans heima Bjögga. Var þar mikið um verkfræðinördinn. Hið ágætasta fólk engu að síður þó það hafi látið afvegaleiðast svona. Risið var reyndar ekki hátt á sumum sem höfðu farið út á lífið kveldið áður.
Ég Gunni, Bjöggi og einn gaur til viðbótar (sem ég man ekki í augnablikinu hvað heitir) ákváðum þó að láta ástand annara partý meðlima ekki á okkur fá og héldum á vit ævintýranna í miðborg Kaupmannahafnar. Förinni var heitið á írskan pöb sem ber heitið Globe (ef ég man rétt) þar sem sögur fóru af því að Bruno, sænsk ættaður Argentínumaður væri þar viðstaddur. Bjöggi þurfti nauðsynlega að hitta á hann til að rökræða hver hvor væri besti knattspyrnumaður allra tíma Tony Adams eða Diego Armando Maradona. Síðast þegar ég vissi þá voru þeir ekki komnir að niðurstöðu.
Ég og Gunni lentum hins vegar á spjalli við sænsk ættaðan Svía sem hafði mikla þörf fyrir að tjá sig um Pétur Marteinsson. Þessi ágæti Svíi var mikill stuðningsmaður knattspyrnuliðsins Hammarby. Hann trúði okkur fyrir því að Pétur væri besti íslenski knattspyrnumaður allra tíma, besti knattspyrnumaður sem nokkru sinni hefði spilað með Hammarby og sennilega besti knattspyrnumaður allra tíma. "Kúngen af Stokkhólm" eins og hann orðaði það sjálfur.
Við tókum orð Svíans að sjálfsögðu sem heilögum sannleik, eða þangað til að við ákváðum að yfirgefa staðinn. Þá hrópaði Gunni "Kári Árnason er miklu betri en Pétur Marteinsson" og ég tók undir orð hans og hrópaði "Djurgården er miklu betra lið en Hammarby."
Ég og Gunni erum nú eftirlýstir á Stór-Stokkhólmssvæðinu.

2 Comments:
Ja, tad er leitt ad geta ekki ferdast lengur til tess fallega lands Svitjodar og hitta hina fallegu og skemmtilegu Svia.
Loksins einhver sem er sammála mér að Pétur Marteinsson sé sá allra fimasti sem hafi reimt á sig knattspyrnuskóna.
Sendu inn athugasemd
<< Home