Gestablogg tengdamömmu Vésteins
Í miðvikudagshádegi 22.mars mættum við mæðgur á Kastrup. Við urðum fyrir smá vonbrigðum því Vésteinn var ekki mættur til að fagna komu okkar. En hann birtist eftir örfáar mínútur og þá fengum við að vita að flugvallarstarfsmenn höfðu lokað bílastæðakjallara Vésteins og ekki látið hann vita. Ég skil ekki slíka framkomu, vita mennirnir ekki hve oft Vésteinn þarf að sækja mikilvæga gesti? Dísa beið úti í bíl með myndvélina og tók af okkur myndir eins og vera ber er frægt fólk ferðast. Ótrúlegt en satt það var vetur í Kaupmannahöfn, snjór í görðum, glampandi sól og kaldur vindur. Íbúðin hér að Ellebækvej er einstaklega þægileg og þar er þetta ágæta gestaherbergi með uppbúnum rúmum. Næstum óaðfinnanlegt en fullkomnunarsinninn ég varð að finna eitthvað að og gluggatjöldin eru vægast sagt óvenjuleg! Kokkurinn hér kann aftur á móti sitt fag og eldaði dýrindis pestókjúkling og bauð upp á 1.flokks hvítvín með. Þar sem þetta er fyrsta heimsókn móður minnar til Köben urðum við að arka Strikið og þangað fórum við í lest. Við fundum Strikið eftir nokkra leit, því ég er með eindæmum áttavillt heima á Íslandi og ekki skánar það á erlendri grund. Við heimsóttum nokkrar stórverslanir í eigu Íslendinga og einhverjar örfáar sem Danir eiga. Eins og allir vita eiga bílstjórar rétt á frítíma, en einmitt í frítíma Vésteins þurftum við mæðgur allar þrjár að skreppa í IKEA og haldið þið ekki að Dísa og Vésteinn hafi treyst mér til að setjast undir stýri í Kaupmannahöfn og það gekk stórslysalaust! En það var eins gott að bílstjórinn var ekki í fríi þegar leiðin lá í Jónshús því þangað hefði ég ekki ratað. Það er alveg frábært að vera í heimsókn hjá Dísu og Vésteini, þau er alveg einstök og ég mæli með heimsókn til þeirra. Smá ráðleggin í lokin, ef þið ætlið í bíó með Vésteini leyfið honum þá að velja myndina!!
Ingibjörg Gunnarsdóttir


6 Comments:
Ég ætlaði ekki að þekkja ykkur mæðgur á þessari mynd.
Já, gluggatjöldin eru sérstök, en ég er vissum að Vala Matt er mér sammála með það hvað það er sniðugt að nota þau svona til að geyma í bækur!! Ég hef verðið að spá í hvort ég geti ekki notað þessa hugmynd, það koma svo margar bækur í kiljuklúbbnum.
hin tengdóin
Ég hélt að þetta væri mynd af Vésa og Dísu.
Já það er ekki laust við að maður hlakki enn meira til en áður að hitta ykkur hjúin í k.höfn eftir þessa lesningu.
Þakka fyrir að það aðstað fyrir gest(i) er með slíkum sóma sem hér er lýst. Vona að það farin eins vel um Stu, Guð og Ásg í stöfunni.
Gesta bloggið mun væntanlega vera sérlega vinsælt. Þá get ég loksins svarað áskorun Stænersins frá því í síðasta bloggi hans hér á vefnum. Spurning hvort að ný færsla birtist áður en ég læt sjá mig???
Hafið það sem allra best,
Einn af bræðrunum eða hvað
Well done!
[url=http://alegzttj.com/gequ/lile.html]My homepage[/url] | [url=http://jipueyvc.com/jqzk/ayap.html]Cool site[/url]
Nice site!
My homepage | Please visit
Well done!
http://alegzttj.com/gequ/lile.html | http://ufbkezbv.com/bjdb/woth.html
Sendu inn athugasemd
<< Home