En gang Brøndby, altid Brøndby
Gunni litli átti afmæli í gær. Til hamingju með daginn í gær Gunni.
Í tilefni dagsins fórum við Gunni á fótboltaleik. Og það ekki neinn venjulegan fótboltaleik. Nei kæru lesendur, hér var um að ræða leik ársins í danska fótboltanum. Toppliðin í Danmörku áttust þar við, Brøndby og FC København á Brøndby stadion. Hið góða (Brøndby) og hið illa (FCK). Það var því mikil tilhlökkun sem ríkti í hjörtum okkar Gunna þennan dag er við lögðum af stað til Brøndby. Það eina sem skyggði á gleði okkar var hitastigið, en það var um 0° (á Kelvin). Okkur kveið því vissulega örlítið fyrir að þurfa að sitja á rassinum í 90 mínútur og verða kannski vitni að sigri FCK.
Raunin varð hins vegar allt önnur og betri. Leikurinn byrjaði fjörlega þrátt fyrir kuldann, og Brøndby stjórnaði leiknum frá upphafi þrátt fyrir örfáar skyndisóknir FCK manna. Einungis eitt mark var þó skorað í fyrri hálfleik, en þar var að verki Thomas nokkur Rasmussen fyrir Brøndby. Við Gunni vorum því glaðir í hálfleik.
Í seinni hálfleik héldu yfirburðir Brøndby áfram og brátt var staðan orðin 2-0 eftir að hinn sænsk ættaði Martin Ericsson skallaði vel útfærða aukaspyrnu Thomasar Rasmussen. Okkar menn létu hins vegar ekki þar við sitja og héldu áfram að pressa FCK menn út um allan völl. Það skilaði sér svo í þriðja markinu á 69. mínútu þegar FCK mönnum varð hrikalega á í messunni í vörninni og Martin Retov átti ekki í miklum vandræðum með að nýta sér það og senda knöttinn í netið. Þannig lauk leiknum og mikil fagnaðarlæti brutust út.
Við Gunni héldum því glaðir í bragði heim á leið og trúði Gunni mér fyrir því að þetta hafi verið bezti afmælisdagur sem hann hefði upplifað og er ég ekki frá því að ég hafi séð glitta í tár á hvarmi.

1 Comments:
Einhver sagði mér að það væri sambandi milli þess að halda með Bröndby og KR. Er þetta rétt?
Sendu inn athugasemd
<< Home