Gleðilegan bolludag
Kæru lesendur, til hamingju með bolludaginn.
Í tilefni bolludagsins fórum ég og mín heittelskaða í bollukaffi í Jónshús í gær. Eins undarlega og það kann að hljóma þá þekktum við nánast ekki neinn á staðnum. Að vísu rákumst við á prestinn rétt áður en hann fór, og hittum svo Steinunni vinkonu Gunna litla sem einnig var á förum þegar við vorum að stíga inn úr dyrunum. Bollurnar voru hins vegar alveg hreint ágætar þó svo að ég hefði heldur kosið rabbabarasultu á mínar.
Í dag fór hins vegar minna fyrir bolluátinu. Í stað þess ákváðum við að fara í kvikmyndahús, eitthvað sem við höfum ekki gert síðan við stigum á land í Danmörku. Kvikmyndahúsið Kinopalæet í Kulturhúsinu í Lyngby varð fyrir valinu. Þar sáum við hina vægast sagt miður skemmtilegu kvikmynd Rygtet siger (eða Rumor has it eins og myndin heitir á frummálinu). Kevin Costner hefur enn á ný náð nýjum lægðum í leiðindum og er þá mikið sagt. Vörum við alla við að sjá þennan viðbjóð.
Og að lokum, kæri anonymous, ég mun vonandi svara klukkinu innan nokkurra daga.


1 Comments:
Hrikalega er þessi bolludagur farinn að fara í taugarnar á mér!!
Sendu inn athugasemd
<< Home