Das Prinz und die Prinzess auf Leifsgata
Jón og Auður eru mætt á Gammel Køge Landevej 128 í þéttum fíling á kantinum. Þau mættu hér eldsnemma að Dísu tíma í gærmorgun (um hádegi) eftir langt og strangt ferðalag frá Íslandi. Það voru miklir fagnaðarfundir á flugvellinum og er ég ekki frá því að ég hafi séð tár falla af hvarmi Jóns.
Ekki stoppuðu þau þó lengi við hér í Valby, heldur héldu á vit ævintýranna í miðbæ Kaupmannahafnar. Þau höfðu mælt sér mót við Heidda hinn sænska og fleira ágætis fólk. Um kveldið hittum við þau svo aftur á hinum ágæta ítalska veitingastað Ristorante Italiano (einkar frumlegt nafn) sem staðsettur er á afar rómantískum stað í miðbæ Kaupmannahafnar. Þar kom saman stór hópur Íslendinga sem tengdust annaðhvort Jóni og Auði eða Heidda frá Uppsölum. Áttum við þar góða kvöldstund saman, snæddum ljúffengan ítalskan mat (nokkuð deildar meiningar um það að vísu) og hlýddum á ljúfa ítalska tóna (enn deildari meiningar um það). But all good things must come to an end. Ég er ekki frá því að ég hafi séð annað tár falla af hvarmi Jóns er hann kvaddi Heidda sem er á leið aftur til Sverige í dag.
Í dag munum við svo fara í verzlunarleiðangur í Fields að einlægri ósk Jóns, þrátt fyrir mikil mótmæli Auðar og Dísu.


1 Comments:
Já, grátkirtillinn minn er á lóðaríi og vinnur á akkorði þessa dagana.
Undursamlega skemmtileg pyntingarferð í Fields í dag og skal hún endurtekin sem fyrst.
Þess má geta að þú hefur fengið staðfest heimsmet þitt í kókdrykkju: 19,2 lítrar.
Sendu inn athugasemd
<< Home