31 desember 2005

Áramótakveðjur

Vésteinn, Jón Gunnar og Dísa í áramótafíling
Vésteinn og Dísa óska öllum landsmönnum gleðilegs árs og velfarnaðar á komandi ári. Við viljum koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hafa átt viðskipti við okkur á árinu sem er að líða.

30 desember 2005

Dönsk jól



Jól í Kaupmannahöfn eru búin að vera okkur mjög góð. Mamma eldaði íslenskar rjúpur sem hún smyglaði inn til landsins, þar sem fjölskyldan gat ekki lifað þriðju jólin af án rjúpna. En þar sem Vésteinn grís borðar ekki slíkan dýrindis mat á jólunum þá var keyptur danskur grís handa honum sem hann og mamma elduðu. Vésteinn bjó svo til frægu kókakólasósuna og heppnaðist þetta ótrúlega vel.
Í eftirrétt var svo Toblerone ís í boði Dísu og Vésteins. Þar sem engin mandla fannst í húsinu var bara dregið um möndlugjöfina og mér til mikillar ánægju þá fékk ég hana.
Möndlugjöfin var hinn stórskemmtilegi leikur Buzz og erum við fjölskyldan búin að liggja í honum öll jólin. Og ég er náttúrulega langbest, ekki spurning!! Ef þið trúið mér ekki, komið þá bara og reynið að vinna mig!!!!!

Síðan Vésteinn spáði fyrir um rauð jól hér á síðunni þá hefur snjóað og snjóað. Kaupmannahöfn er orðin jafn hvít og myndin frá síðasta bloggi. Bílar eru stopp út um allt því danir kunna ekki að keyra í snjó og þar á auki á sumardekkjum. En Ljónið okkar lætur ekkert stoppa sig með ökuþórinn Vésteinn við stýrið og á vetrardekkjum. Vésteinn er orðinn svo fær að keyra um Kaupmannahöfn að hann er næstum hættur að nota kortabók, hann bara keyrir eftir minni og ef eitthvað klikkar þá reddar hann bara málunum. Alla vega komust við alltaf heim á endanum :)

24 desember 2005

Jólakveðjur



Herra Vésteinn og ungfrú Dísa óska öllum vinum og vandamönnum nær og fjær gleðilegra jóla.
Það skal tekið fram að myndin hér að ofan lýsir í engu ástandinu hér í Danmörku því samkvæmt veðurspá TV2 eru 0% líkur á hvítum jólum í Kaupmannahöfn.

20 desember 2005

Road Trip

Borg einkabílsins
Við Dísa vorum aldeilis á faraldsfæti í gær. Og þá dugði ekkert minna en okkar kæri einkabíll, enda erum við miklir vinir einkabílsins. Dísa þurfti sem sagt að komast á Rigshospitalet frá Valby þar sem við búum, og fékk ég því það hlutverk að skutla henni á leiðarenda. Sjaldan á ævinni hef ég verið jafn stressaður og svaf ég sama og ekkert nóttina áður. Þann litla tíma sem ég svaf dreymdi mig fallna hjólreiðamenn. Hins vegar gekk ferðin með eindæmum vel, þökk sé hinum ágæta vef www.krak.dk, kortabókinni góðu sem Kiddi lánaði mér og Dísu aðstoðarökumanni. Leiðin heim gekk einnig vel þó svo að í um hálftíma hefðum við aðeins færst áfram um þrjá metra á leið okkar í gegnum miðbæinn. Við komumst þó heilu á höldnu heim á endanum.
En þar með er ekki öll sagan sögð af ferðalögum Vésteins þennan daginn. Nokkrum mínútum eftir að við vorum komin heim af spítalanum var ég í tilbúinn í næsta road trip. Ég brunaði því af stað í sjálfrennireið minni sem leið lá frá Valby til Søborg, þar sem minn ágæti vinur Gunni býr. Hafði honum tekist að plata mig til að skutla sér út á flugvöll, þar sem hann var á leið til Íslands seinna þetta umrædda kveld. Hafði ég tekið einkar vel í þá bón. Leiðin frá heimilu mínu til Gunna var einkar greið, þar sem ég gat keyrt nánast alla leið á hraðbrautum Kaupmannahafnar. Ég fékk svo Gunna sjálfan til að keyra út á flugvöll þar sem ég var kominn með meira en nóg af akstri fyrir einn dag. Ég varð hins vegar að sjá um að koma mér sjálfur frá flugvellinum og aftur heim til Valby.
Þetta tókst mér allt, ágætu lesendur, án þess að villast, að minnsta kosti að einhverju ráði.
Góðar stundir.

18 desember 2005

Hamingjuóskir frá Bachelorklúbbnum

Steini í góðum fíling

Bachelorklúbburinn vill koma á framfæri innilegum hamingjuóskum til þeirra Steina og Jennýar, og vonar að þau eigi bjarta framtíð fyrir sér. Það er einlægt mat Bachelorklúbbsins að Jenný hafi þarna náð sér í mikinn mannkost. Einnig vill Bachelorklúbburinn koma þeim óskum á framfæri við yfirmenn Skjás 1 að framhald verði á þessum frábæra þætta. Bachelorklúbburinn átti margar yndislegar og rómantískar stundir fyrir framan sjónvarpsskjáinn. Því miður var mætingin á fundi Bachelorsklúbbsins ekki nógu góð oft á tíðum, en við vonum að úr því rætist í næstu syrpu, þar sem þátturinn hefur svo sannarlega sannað tilverurétt sinn í íslensku sjónvarpi. Ég, formaður Bachelorsklúbbsins og Kiddi, gjaldkeri Bachelorsklúbbsins munum taka við nýskráningum fram að næstu syrpu. Skilyrði fyrir inngöngu í klúbbinn eru að vera karlmaður (helst metró eins og ég og Kiddi) og þykja rósavín æðislega gott.
Að síðustu vil ég koma á framfæri ástarþökkum til Kidda fyrir frábærar stundir á fundum Bachelorklúbbsins.

Góðar stundir

15 desember 2005

Nauðsynlegar upplýsingar

Sæll umheimur!

Loksins, loksins er stundin runnin upp sem þið hafið öll verið að bíða eftir. Wankerinn er kominn á veraldarvefinn á nýjan leik, og að þessu sinni ekki einn heldur í fylgd með hinni yndisfríðu Fräulein Dísu. Fylgist því grant með næstu vikur og mánuði því spennandi tímar eru framundan, ég leyfi mér að segja nýjir tímar í íslenskri fjölmiðlun.
En kæru lesendur, þessi færsla er sérstaklega ætluð til að vekja athygli ykkar á búferlaflutningum okkar og hér á eftir fylgja því nauðsynlegar upplýsingar fyrir ykkur ef þið þurfið að ná í okkur.

Heimilisfang:
c/o Bryndís Magnúsdóttir
Gammel Køge Landevej 128
2500 Valby
Danmark

Símanúmer:
(oo45) 22823671

Skype:
vesteinn78

MSN:
vesteii@hotmail.com
svandish@hotmail.com


Góðar stundir